Harvoni

Lyfjainntaka Veirusjúkdómar

Nýja lyfið Harvoni, þá svona er ég frekar forvitin af yfirbragði og þar sem ég er svona heppin að fá að tilheyra þeim sem á því þurfa þá langaði mér til að svona bara upp á forvitni að sjá hvort maður geti lesið eitthvað um þetta lyf því ég finn það ekki hérna í lyfjabókini sem gæti verið ástæða fyrir en ef þú gætir sent mér svona nokkrar línur þá gæti ég lesið eitthvað. Svo er ég endalaust þakklátur fyrir að vera loks komin í hópinn sem fær að njóta þess takk fyrir mig

Allra nýjustu lyfin eru ekki komin í Lyfjabókina. Á sérlyfjaskrá (www.serlyfjaskra.is) er að finna upplýsingar um öll lyf sem hafa markaðsleyfi á íslandi, þar á meðal Harvoni. Upplýsingar um nýjustu lyfin eru geymdar á vef evrópsku lyfjastofnunarinnar og því vísar sérlyfjaskrá þér stundum þangað.