Kláði við endaþarm

Húðvandamál

Ég er búinn glíma við sviða og kláða við og inní endaþarmsopi í nokkur ár, ég er ekki með gyllinæð en hef fengið svoleiðis, er eitthvað krem eða smyrsl sem þú mælir með?

Sviði og kláði við endaþarm er algengara vandamál en margir halda. 

Til eru nokkur krem sem hægt er að mæla með. 

Hægt er að nota 1% hydrocortisone sterakrem sem hægt er að bera á kláðasvæðið 2svar á dag. Það fæst án lyfseðils í apótekum undir heitinu Mildison. 

Krem sem innihalda Zinc Oxíð verka einnig gagnvart þesskonar kláða. Til eru nokkrar mismunandi gerðir af þeim. 

Þriðja kremið sem hægt væri að mæla með er Proctosedyl. Það inniheldur meðal annars sama sterann og er í Mildison ásamt bakteríudrepandi efni. Það er borið á útvortis 1-2svar á dag.  

Þú getur snúið þér til næstu Lyfju, eða Apóteks og fengið nánari útskýringar.