Vanvirkur skjaldkirtill

Lyfjainntaka

Ég er með vanvirkan skjaldkirtil og tek inn Levaxin. Ég er einnig að berjast við þunglyndi og tek inn Sertral við því. Nú las ég að það mætti ekki taka Sertral og Levaxin saman! Er þetta virkilega rétt?

Það má taka Sertral og Levaxin saman. Lyfin milliverka þannig að það getur þurft að hækka Levaxin skammtinn þegar byrjað er á Sertral. Þetta er mjög einstaklingsbundið og þess vegna ætti að fylgjast vel með hvort það þurfi að aðlaga Levaxin skammt eftir að byrjað er á Sertral. Ef að þér líður vel af þeim skammti sem þú tekur af Levaxin samhliða Sertral þá er það í góðu lagi og allt í lagi að taka þessi lyf saman. Ef að þú heldur að það þurfi að endurskoða Levaxin skammtinn þá skaltu ræða það við lækninn þinn.