Þekkir þú einkennin?
Það er ekki að ástæðulausu sem við hvetjum karlmenn sérstaklega til að þekkja og bregðast við hugsanlegum einkennum krabbameina. Rannsókn Krabbameinsfélagsins meðal fólks á Íslandi sem greindist með krabbamein á árunum 2015-2019 sýndi að karlar leituðu almennt seinna en konur til lækna vegna einkenna sem reyndust eiga rót sína að rekja til krabbameins. Alls 14% karla biðu í meira en ár með að hitta lækni.
Það getur skipt miklu máli varðandi horfur að krabbamein séu greind fljótt ef einkenni gera vart við sig og því skiptir máli að þekkja þau og bregðast við þeim. Mynd: steffi harms frá Unsplash