Magavandamál

Lyfjainntaka

Eru til önnur lyf en Nexium með svipaðri virkni? Sonur minn er mjög slæmur í maga, ég var bara að spá, því ég heyrði af einhverju öðru lyfi sem ætti að vera svo gott?

Lyf í sama lyfjaflokki og Nexium eru t.d. lyf sem innihalda omeprazol (Omeprazol eða Losec) og rabeprazol (Rabeprazol eða Pariet). Þú getur lesið þér meira til um þessi lyf á Lyfjabókinni

Annars mæli ég með því að þið ræðið það við lækni hvað myndi henta best fyrir viðkomandi einstakling.