Ganirelix Gedeon Richter
Hormónalyf, önnur en kynhormónar og insúlín | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Ganirelix
Markaðsleyfishafi: Gedeon Richter Plc | Skráð: 15. júlí, 2022
Ganirelix Gedeon Richter inniheldur virka efnið ganirelix og er í flokki lyfja sem hindra myndun gónadótrópínleysandi hormóna og verka á móti náttúrulega gónadótrópín leysihormóninu (GnRH). GnRH stjórnar losun gónadótrópína (gulbúsörvandi hormón (LH) og eggbúsörvandi hormón (FSH)). Gónadótrópín gegna mikilvægu hlutverki í frjósemi og æxlun hjá mönnum. Konur þurfa FSH fyrir vöxt og þroska eggbúa í eggjastokkum. Þörf er á gulbúsörvandi hormóni (LH) til að losa þroskaðar eggfrumurnar úr eggbúunum og eggjastokkunum (þ.e. egglos). Ganirelix Gedeon Richter hamlar verkun GnRH sem leiðir til bælingar á losun LH sérstaklega. Hjá konum sem fara í tæknifrjóvgun, að meðtalinni glasafrjóvgun (IVF) og öðrum aðferðum, getur egglos stundum orðið of snemma og veldur það marktækt minni möguleikum á þungun. Ganirelix Gedeon Richter er notað til að koma í veg fyrir það ótímabæra streymi gulbúsörvandi hormóns sem getur valdið slíkri ótímabærri losun eggfrumna.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Stungulyf í áfylltri sprautu.
Venjulegar skammtastærðir:
Ganirelix notað ásamt raðbrigða eggbúsörvandi hormóni (FSH) eða corifollitropin alfa, sem örvar eggbú og er langverkandi. Hefja má örvun eggjastokka með FSH eða corifollitropini á 2. eða 3. degi tíðablæðinga. Ganirelix Gedeon Richter á að dæla inn í fitulagið rétt undir húðinni einu sinni á dag og byrja á 5. eða 6. degi örvunar. Byggt á svörun eggjastokka getur læknirinn ákveðið að byrja einhvern annan dag. Ganirelix Gedeon Richter og FSH skal gefa á nokkurn veginn sama tíma. Þó má ekki blanda lyfjunum saman og nota skal sinn hvorn stungustaðinn við gjöf þeirra.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Fljótlega eftir inndælingu.
Verkunartími:
Innan við 2 sólarhringir.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Komi í ljós að þú hafir gleymt skammti skaltu dæla inn skammti eins fljótt og hægt er.
Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að nota.
Ef meira en 6 klst. eru liðnar frá því að dæla átti skammti og tíminn milli tveggja inndælinga er orðinn
lengri en 30 klst. skal dæla inn skammtinum eins fljótt og hægt er og hafa samband við lækninn til að
fá frekari ráðleggingar.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki skal hætta notkun Ganirelix Gedeon Richter án ráðlegginga frá lækninum, þar sem það getur haft áhrif á meðferðina.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Daglegri gjöf Ganirelix Gedeon Richter skal haldið áfram til þess dags sem nægur fjöldi eggbúa af hæfilegri stærð er til staðar.
Aukaverkanir
Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Höfuðverkur, slappleiki | ![]() |
![]() |
|||||
Ógleði | ![]() |
![]() |
|||||
Viðbrögð á stungustað | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Ekki hafa verið gerðar neinar rannsóknir á milliverkunum. Ekki er hægt að útiloka hugsanlegar milliverkanir við algeng lyf, þ.m.t. lyf sem losa histamín.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
Meðganga:
Lyfið á ekki að nota á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Lyfið á ekki að nota á meðan brjóstagjöf stendur.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Á ekki við.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.
Áfengi:
Í litlu magni ætti áfengi ekki að hafa áhrif á virkni lyfsins.
Annað:
Einungis sérfræðilæknar í kvensjúkdómum og fæðingahjálp og sérfræðingar í innkirtlasjúkdómum mega ávísa lyfinu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.