Oculac

Augnlyf | Verðflokkur: G | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Póvídon

Markaðsleyfishafi: Alcon Nordic | Skráð: 1. október, 1999

Oculac inniheldur efnið póvídon. Lyfið er svokallað gervitár og er notað við augnþurrki. Augnþurrkur stafar oftast af skorti á táravökva en ástæður þess geta verið margar, m.a. stíflur í táragöngum, bólgur, minnkuð myndun táravökva og aukaverkanir vegna töku lyfja. Augnþurrkur veldur óþægindum, kláða og sviða í augum og þreytu. Gervitárin stuðla að því að halda raka í auganu. Oculac er hægt að fá með og án rotvarnarefna.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Augndropar

Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í auga eftir þörfum við augnþurrki.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Verkun kemur fram um leið og lyfið er notað.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar. Órotvarða augndropa úr einnota skammtahylkjum skal nota strax eftir að þau hafa verið rofin.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er aðeins notað eftir þörfum.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Jafnvel mjög stórir skammtar ættu ekki að valda óþægindum.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Hafðu þó samband við lækni ef þörf er á að nota lyfið í langan tíma.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Roði og bólga í augum eða augnlokum          

Milliverkanir

Ef önnur augnlyf eru notuð (t.d. við gláku) eiga að líða a.m.k. 5 mín. milli þess sem lyfin eru notuð. Ávallt skal nota Oculac síðast.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Eins og á við um önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Rotvarnarefni sem notað er í lyfinu getur skemmt mjúkar augnlinsur. Lyfið fæst líka án rotvarnarefnis.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.