Tilavist (afskráð júl. 2011)
Augnlyf | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Nedókrómílnatríum
Markaðsleyfishafi: Sanofi | Skráð: 1. október, 1995
Tilavist er notað við ofnæmiseinkennum í augum. Nedókrómílnatríum, virka efni lyfsins, kemur í veg fyrir losun bólguvaldandi efna úr mastfrumum ónæmiskerfisins og hefur þess vegna bólgueyðandi og ofnæmisbælandi eiginleika. Það hefur mest fyrirbyggjandi áhrif við ofnæmiseinkennum en kemur líka að notum gegn ofnæmisbólgum í augnslímhúð. Lyfið er notað reglulega til að halda einkennum niðri þann tíma sem búast má við að ofnæmisvaldur sé til staðar í umhverfi.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Augndropar.
Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í hvort auga 2-4 sinnum á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 15 mín.
Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Augndropa skal nota innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ef búast má við því að ofnæmisvaldar séu til staðar í umhverfi skal halda áfram að nota lyfið reglulega, jafnvel þótt einkenni séu horfin.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir má skola lyfið úr auganu með vatni. Hafðu samband við lækni ef einhver óvenjuleg einkenni koma fram.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða.
Aukaverkanir
Engar alvarlegar aukaverkanir hafa komið fram eftir notkun augndropanna.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Erting og sviði í auga | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Eins og á við um önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.