Estradiol Hexal
Lyfseðilsskylt
Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Estradiol Hexal er gefið eitt og sér, í hormónameðferð eftir tíðahvörf ef að minnsta kosti 12 mánuðir eru frá síðustu náttúrulegu tíðablæðingum. Eftir tíðahvörf hætta eggjastokkarnir að framleiða estradíól og prógesterón. Hormónameðferðin miðast að því að vega skortinn upp sem verður og að slá á einkenni sem eru samfara honum. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar líkur á beinþynningu þar sem estradíól heldur áfram eðlilegu viðhaldi beina.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru tíðari í upphafi meðferðar og eftir því sem skammtar eru stærri. Listinn er ekki tæmandi.
- BrjóstaspennaLeitið til læknis
- BrjóstastækkunLeitið til læknis
- Erting undan plástriLeitið til læknis
- Höfuðverkur, ógleðiLeitið til læknis
- Kviðverkir, niðurgangur og meltingartruflanirLeitið til læknis
- Óeðlilegar blæðingarLeitið til læknis
- SkapgerðarbreytingarLeitið til læknis
- Útbrot, kláðiLeitið til læknis
- ÚtferðLeitið til læknis
- Verkir, þróttleysiLeitið til læknis
- Þyngdarbreyting, bjúgurLeitið til læknis
- HáþrýstingurLeitið til læknis
- Breytingar í brjóstumLeitið strax til læknis
- GulaLeitið strax til læknis
- Verkur í fótum, nára eða fyrir brjóstiLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Lyf sem auka áhrif lifrarensíma, t.d. sum flogaveikilyf eða sýklalyf, geta dregið úr virkni lyfsins. Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með astma
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með krabbamein í legi eða brjóstum
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú eigir sögu um blóðtappa
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
- þú sért með ofnæmi fyrir hnetum og soja








