Ekki láta lúsmý trufla sumarið/ferðalagið/útileguna!

Almenn fræðsla Húð

Það fer eflaust ekki farið fram hjá neinum þegar lúsmýið er mætt á stjá og hefur dreift sér víða um land með tilheyrandi óþægindum og vandræðum. Lúsmý eru afar litlar, fínlegar og illa sýnilegar flugur sem finnast víða um land. 

Þessi óvelkomni gestur sumarsins heldur sig yfirleitt þar sem er skjól og skuggi en eftir því sem loftslag hlýnar verður mun auðveldara fyrir lúsmý að setjast að svo sem í vatni og blautum jarðvegi. Lúsmý hefur herjað á landsmenn í auknum mæli til mikillar ógleði þar sem lúsmý eru miklir bitvargar. Engin von er þó á því að þessi bitvargur sé á förum og því mikilvægt að kunna góð ráð til þess að koma í veg fyrir bit. Flugnafæla og armbönd geta komið í veg fyrir bitglaðar flugur á sumrin!

Flugurnar gera mörgum lífið leitt

Lúsmý hefur látið finna verulega fyrir sér undanfarnar vikur en fjöldi fólks er að upplifa mikil óþægindi í kjölfar bita. Lúsmýið sýgur blóð úr háræðum fólks en um leið og þær stinga sprauta þær munnvatni í háræðarnar sem kemur í veg fyrir að blóðið storkni. Fljótlega eftir árás frá lúsmý koma fram bólur og útbrot með tilheyrandi óbærilegum kláða sem getur staðið yfir í nokkra daga þar sem bitin virkja ofnæmisviðbrögð líkamans. Það er því er mikilvægt að kunna góða forvörn og rétta meðhöndlun.

Hvernig er hægt að koma í veg fyrir lúsmý?

Flugan fer helst á stjá á kvöldin þegar kyrrt er og leitar þá mikið inn um glugga en því er meðal annars mikilvægt að reyna að koma í veg fyrir að þær komist inn með því að loka gluggum á kvöldin og nóttunni eða setja net fyrir svo þær komist ekki inn. Að auki er gott að hafa viftu í gangi í svefnherberginu að næturlagi til þess að koma hreyfingu á loftið sem og sofa í náttfötum. Önnur áhrifarík leið er að bera á sig öflugar flugnafælur sem og notast við armbönd sem koma í veg fyrir að flugurnar sækist í þig.

Parakito flugnafælusprey

Parakito spreyin eru náttúruleg flugnafæla sem virka afar vel á lúsmý og sambærilegar flugur og flær sem angra landsmenn nær og fjær. Parakito spreyin innihalda náttúrulegar olíur ásamt því að þau eru með einkaleyfisvarða tækni sem eykur virkni virku efnanna sem og ver húðina. Innihaldsefni þessarar öflugu flugnafælu eru 99% náttúruleg sem og eru án DEET og alkóhóls. Spreyin fást í þremur tegundum og geta því allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Parakito sport spreyið er vatnsfráhrindandi sem hentar gríðar vel í utanlandsferðirnar, göngurnar, útihlaupin og aðra útiveru. Sport veitir vörn í allt að 8 klukkustundir og hentar börnum 3 og eldri. Family spreyið er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð, veitir vörn í allt að 7 klukkustundir og hentar börnum 12 mánaða og eldri. Beauty fælan er afar rakagefandi og nærandi formúla sem veitir vörn í allt að 6 klukkustundir og hentar börnum 6 mánaða og eldri. Skoða vörur hér

Parakito flugnafælu armbönd fyrir alla fjölskylduna

Parakito flugnafælu armböndin eru með fíngerðar plötur sem innihalda náttúrulega ilmkjarnaolíur sem fæla í burtu lúsmý, moskítóflugur og sambærilegar flugur. Armböndin eru stillanleg, létt og þægileg á úlnliðinn eða ökklann og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að flugurnar leggi til árásar. Sport armböndin eru vatnsheld, þynnri og léttari og því tilvalin í hlaupin, göngurnar og á ströndina. Að auki má finna armbönd fyrir börnin sem létt er að smella á litla úlnliði eða ökkla en þau eru afar þægileg til notkunar fyrir börnin. Nældu þér í flugnafælu sprey eða armband og komdu í veg fyrir bitvargana á ferðinni í sumar. Skoða vörur hér

Parakito flugnafælan og armböndin eru ómissandi í ferðalagið í sumar til þess að koma í veg fyrir bitvarga á borð við lúsmý og moskító. Skoða hér

 

Spreyin