Hreyfing á meðgöngu | 3 einföld ráð
Guðrún og Nadia og eru sjúkraþjálfarar sem reka Orka Studio þar sem þær sérhæfa sig í fræðslu og þjálfun kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð. Hreyfing á meðgöngu er eitt það besta sem þú getur gert fyrir bæði líkama og sál – svo framarlega sem hún er aðlöguð að þínum líkama og þörfum.
Meðganga er einstakt tímabil þar sem líkaminn breytist hratt og það er eðlilegt að þurfa að aðlaga hreyfingu eftir því.
Reglubundin hreyfing á meðgöngu hefur margs konar jákvæð áhrif:
- Bætir líðan og orkustig
- Getur dregið úr verkjum og óþægindum
- Styður við bættan svefn
- Undirbýr líkamann fyrir fæðingu og styður við endurheimt eftir hana
Við viljum deila með ykkur þremur einföldum ráðum sem hjálpa til við að halda líkamanum virkum með vellíðan í fyrirrúmi á meðgöngu:
Ráð 1: Tengdu við grindarbotninn
Grindarbotninn gegnir mikilvægu hlutverki á meðgöngu – hann styður við innri líffæri, vinnur með öndun og tekur virkan þátt í fæðingu. Mikilvægt er að kunna bæði að spenna og slaka á honum svo hann geti unnið rétt og á áhrifaríkan hátt. Ef þú ert óörugg hvernig á að framkvæma æfinguna getur verið gott að fá leiðsögn frá sjúkraþjálfara með sérhæfingu í kvenheilsu.
Ráð 2: Hreyfðu þig reglulega
Samkvæmt alþjóðlegum ráðleggingum er æskilegt að hreyfa sig í að minnsta kosti 150 mínútur á viku af miðlungs ákefð. Það getur litið út eins og 20 mínútur á dag eða 50 mínútur þrisvar sinnum í viku. Veldu hreyfingu sem veitir þér vellíðan og þú hefur gaman af – það getur verið gönguferð, sund, jóga, þolæfing eða styrktarþjálfun. Allt telur og allt er betra en ekkert!
Ráð 3: Lærðu á þinn líkama
Þú ert einstök og meðgangan líka. Það sem hentar öðrum hentar ekki endilega þér – og það er í góðu lagi. Vertu opin fyrir því að aðlaga æfingar eftir því hvernig þér líður þann daginn, eftir þreytu eða verkjum. Meðganga kallar á sveigjanleika og hlustun – það er engin ein rétt leið.
Að lokum…
Ef þú finnur fyrir verkjum, óþægindum eða ert óörugg, þá er alltaf gott að leita til fagaðila sem getur hjálpað þér að finna þinn takt. Mundu að smá hreyfing er betri en engin og það að sýna sér mildi og þolinmæði skiptir öllu máli. Meðgangan er ekki tími til að ná einhverjum „árangri“ – hún er tími til að næra, styrkja og tengjast líkamanum.
Heimildir:
Physical Activity and Exercise During Pregnancy and the Postpartum Period (Committee
Opinion No. 804, 2020)
Mottola MF, Davenport MH, Ruchat S, et al2019 Canadian guideline for physical activity
throughout pregnancyBritish Journal of Sports Medicine 2018;52:1339-1346