Advate

Blæðingalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Octocog alfa

Markaðsleyfishafi: Baxter | Skráð: 1. desember, 2015

Advate inniheldur virka efnið octocog alfa, storkuþátt VIII úr mönnum, framleitt með raðbrigða DNA tækni. Storkuþáttur VIII er nauðsynlegur til að blóðið myndi kekki og blæðingar stöðvist. Hjá sjúklingum með dreyrasýki A (meðfæddan skort á storkuþætti VIII), vantar hann eða hann starfar ekki eðlilega. ADVATE er notað til að meðhöndla og fyrirbyggja blæðingu hjá sjúklingum í öllum aldurshópum með dreyrasýki A (blæðingarsjúkdómur sem gengur í erfðir og orsakast af skorti á storkuþætti VIII). ADVATE er framleitt án þess að prótínum úr mönnum eða dýrum sé bætt við í heildarframleiðsluferlinu. Lyfið er ætlað til notkunar á sjúkrahúsum en er á lista SÍ yfir S-merkt lyf til notkunar utan heilbrigðisstofnana og fæst því afgreitt með niðurgreiðslu í apótekum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyfsstofn og leysir til að búa til lausn

Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru einstaklingsbundnir. Læknirinn mun reikna út skammtinn samkvæmt ástandi þínu og líkamsþyngd og því hvort verið er að nota það til varnar gegn blæðingum eða gegn þeim. Tíðni lyfjagjafa ræðst af því hve vel ADVATE verkar hjá þér. Yfirleitt þarf að nota uppbótarmeðferð með ADVATE alla ævi. Notið lyfið alltaf eins og læknirinn hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Svörun getur verið einstaklingsbundin

Verkunartími:
Verkunartími getur verið einstaklingsbundinn.

Geymsla:
Geymið lyfið í kæli við 2-8°C þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ekki sprauta inn tvöföldum skammti til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka. Sprautaðu inn næsta skammti samkvæmt áætlun og haltu áfram eins og læknir hefur mælt fyrir um.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki má hætta að nota ADVATE án samráðs við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Takið ADVATE alltaf eins og læknirinn hefur sagt til um. Ef þú ert ekki viss um hvernig á að nota lyfið leitaðu þá upplýsinga hjá lækninum. Ef þú sprautar inn meira af ADVATE en mælt er fyrir um skal hafa tafarlaust samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið er ætlað til langtímanotkunar


Aukaverkanir

Ef skyndileg, alvarleg ofnæmisviðbrögð (bráðaofnæmi) koma fram, verður strax að hætta inndælingu. Þú verður að hafa strax samband við lækninn ef þú finnur fyrir einhverjum eftirtöldum byrjunareinkennum ofnæmisviðbragða: Útbrotum, ofsakláða, rauðakláðaþoti, útbreiddum kláða, þrota í vörum og tungu, öndunarörðugleikum, blísturshljóði við öndun, þyngslum fyrir brjósti, almennri vanlíðan, sundli og minnkaðri meðvitund. Alvarleg einkenni, þ.m.t. öndunarörðugleikar og (næstum) yfirlið, þarfnast tafarlausrar bráðameðferðar.


Milliverkanir

Engar rannsóknir á milliverkunum hafa verið gerðar með ADVATE

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Meðganga:
Við meðgöngu, grun um þungun eða ef þungun er fyrirhuguð skal leita ráða hjá lækninum áður en lyfið er notað.

Brjóstagjöf:
Leita ráða hjá lækninum áður en lyfið er notað.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.