Bonjela (afskráð ágú. 2010)

Munn- og tannlyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Cetalkóníum Kólínsalicýlat

Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare

Bonjela inniheldur tvö virk efni, kólínsalicýlat og cetalkóníum. Kólínsalicýlat er skylt lyfinu asetýlsalicýlsýru og er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi. Það hindrar ensímið cýklóoxygenasa sem leiðir til minni prostaglandín framleiðslu og þar með fást bólgueyðandi og verkjastillandi áhrif lyfsins. Cetalkóníum er deyfandi lyf. Lyfið er notað við særindum í munni, m.a. við særindum undan gervitönnum, munnangri og óþægindum vegna tanntöku.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Hlaup í munn.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: Um 1 cm af hlaupi er borið á særindi, hámark á 3ja klst. fresti. Ef lyfið er notað við særindum undan gervitönnum ættu að líða minnst 30 mín. frá því að lyfið er notað þangað til að tennur eru settar á sinn stað. Börn 4ra mánaða og eldri: 0,5 cm af hlaupi borið á góminn á a.m.k. 3ja klst. fresti en mest 6 sinnum á sólarhring.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun lyfsins hvenær sem hentar. Ef einkenni vara lengur en í 7 daga skal hafa samband við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Hafðu samband við lækni ef einhver óvenjuleg einkenni koma fram.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru teknar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Suð fyrir eyrum          
Útbrot, kláði, öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir fengið maga- eða skeifugarnarsár
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með heilaskaða

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Varist þó að nota lyfið skömmu fyrir fæðingu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 4ra mánaða.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.