Daktar (afskráð júl. 2007)
Daktar inniheldur sveppadrepandi efnið míkónazól. Það hefur áhrif á margar tegundir sveppa sem eru algengir að valda sýkingum og er notað staðbundið á húð eða slímhúð. Lyfið er ekki notað við innvortis sýkingum og sýkingum í hársverði eða nöglum þar sem önnur sveppalyf henta betur í þeim tilfellum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Útvortis krem.
Venjulegar skammtastærðir:
Borið á sýkt húðsvæði í þunnu lagi 2svar á dag í 2-6 vikur. Til að fyrirbyggja endursýkingu þarf að halda meðferð áfram í 1-2 vikur eftir að einkenni sýkingar eru horfin.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir staðsetningu sýkingarinnar og næmi sveppa fyrir lyfinu.
Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið jafn lengi og læknir segir fyrir um. Kremið er notað í minnst 1 viku eftir að öll einkenni sýkingar eru horfin. Hætti lyfjanotkun of snemma aukast líkur á því að sýkingin nái sér aftur á strik.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Hafðu samband við lækni ef einhver óvenjuleg einkenni koma fram.
Langtímanotkun:
Míkónazól er aðeins notað í skamman tíma við sveppasýkingum.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Útbrot og mikill kláði | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki nota nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára nema samkvæmt læknisráði.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.