Lomudal Nasal (afskráð apr. 2011)

Neflyf | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Natríumkrómóglíkat

Markaðsleyfishafi: Sanofi | Skráð: 1. október, 1992

Lomudal Nasal er notað fyrirbyggjandi við ofnæmiskvefi. Natríumkrómóglíkat, virka efni lyfsins, hindrar losun á bólgumyndandi efnum úr mastfrumum ónæmiskerfisins og kemur með því móti í veg fyrir ofnæmisviðbrögð. Lyfið vinnur á ýmis einkenni sem fylgja ofnæmissjúkdómum. Natríumkrómóglíkat er kröftugast ef byrjað er að nota lyfið áður en sjúklingur kemst í tæri við ofnæmisvaka.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Nefúði.

Venjulegar skammtastærðir:
1 úðaskammtur (5,2 mg/skammtur) í hvora nös 2-4 sinnum á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar að virka á nokkrum klst. og full virkni kemur á nokkrum dögum.

Verkunartími:
4-6 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Ef úðalyfið er geymt á köldum stað getur virkni drifefnisins minnkað.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Mæði        
Staðbundin erting          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Ekki nota nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.