NeisVac-C

Bóluefni | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Neisseria meningitidis af stofngerð C

Markaðsleyfishafi: Baxter | Skráð: 1. september, 2001

NeisVac-C er bóluefni sem notað er til bólusetningar við Neisseria meningitidis. Bóluefnið inniheldur hreinsað brot úr bakteríunni og vekur upp mótefnasvörun í líkamanum og kemur þannig í veg fyrir að fólk veikist af henni. Neisseria meningitidis er meningókokka baktería sem getur valdið alvarlegum sjúkdómum eins og heilahimnubólgu og blóðsýkingu, sem leiða oftast til dauða ef ekkert er aðhafst. Einkenni sjúkdómsins geta verið mjög lúmsk og í upphafi líkjast þau oft venjulegri kvefpest eða flensu. Sjúkdómurinn gengur yfir í faröldrum og er hann algengastur í börnum en fólk á öllum aldri getur þó fengið hann. Byrjað var að bólusetja gegn þessum bakteríum í lok ársins 2002 en fram til þess höfðu að meðaltali sýkst um 10-15 einstaklingar á hverju ári af alvarlegum sýkingum af völdum meningókókka C.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva.

Venjulegar skammtastærðir:
Börn 2-12 mánaða: 2 skammtar gefnir með a.m.k 2ja mánaða millibili. Örvunarskammtur: samkvæmt opinberum upplýsingum hverju sinni. Börn eldri en 1 árs og fullorðnir: Einn skammtur gefinn einu sinni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Fljótlega eftir að allir skammtarnir hafa verið gefnir.

Verkunartími:
Bólusetningin endist til lífstíðar.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa. Geyma má lyfið samfellt í 9 mánuði við stofuhita (25°C) eins lengi og fyrningin er í lagi.

Ef skammtur gleymist:
Ef seinni skammtur gleymist hjá börnum 2-12 mánaða, ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hálsverkur, stífleiki í hálsi og ljósfælni        
Hiti          
Höfuðverkur          
Krampar        
Minnkuð vöðvaspenna        
Pirringur, grátur hjá ungabörnum          
Rauðir eða purpurarauðir blettir sem fölna ekki við þrýsting        
Roði, bólga og eymsli á stungustað          
Svimi, yfirlið        
Syfja, sljóleiki og svefntruflanir          
Uppköst, ógleði og niðurgangur hjá börnum          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni samtímis þarf að nota aðra stungustaði.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingasjúkdóm
  • þú sért með hita eða sýkingu
  • þú sért með skert ónæmiskerfi

Meðganga:
Ekki má gefa lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Ekki skal gefa lyfið nema brýna nauðsyn beri til.

Börn:
Lyfið er ætlað börnum frá 2ja mánaða aldri.

Eldra fólk:
Öryggi lyfsins hefur ekki verið staðfest hjá fólki eldra en 65 ára.

Akstur:
Ólíklegt er talið að lyfið hafi áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa undir húð eða í æð.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.