Lyfja er framúrskarandi fyrirtæki 2018

Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningar fyrir árið 2018 og er Lyfja meðal þeirra eins og síðastliðin ár.

FF2018-horz-inv

Lyfja hf. er í hópi þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum 2018. 

Meginmarkmið greiningarinnar er að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag fjárfesta og hluthafa.

Creditinfo hefur greint rekstur íslenskra fyrirtækja síðustu átta ár og birt lista yfir þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi. Það sem einkennir fyrirtæki á listanum er m.a að þau sýna stöðugleika í rekstri og eru líkleg til að hafa jákvæð áhrif á efnahag og samfélagið. Fjöldi fyrirtækja á listanum hefur aukist ár frá ári. 

Lyfja er stolt yfir því að vera á þessum lista.

Við þökkum okkar frábæra starfsfólki og okkar góðu viðskiptavinum.

Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
  • Ársreikningi skilað lögum samkvæmt fyrir 1. september
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
  • Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna 2017 (nýtt skilyrði)
  • Rekstrarhagnaður (EBIT > 0) síðustu þrjú rekstrarár
  • Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú rekstrarár
  • Eiginfjárhlutfall hærra en 20% síðustu þrjú rekstrarár
  • Eignir yfir 100 milljónir króna 2017, 90 milljónir króna 2016 og 80 milljónir króna 2015 (breytt skilyrði)