Lyfja er framúrskarandi fyrirtæki 2022

Lyfja er í hópi 2% íslenskra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja árið 2022. 

RGB_FF-2022-Ice-Red-Horz

Creditinfo hefur greint rekstur íslenskra fyrirtækja síðustu átta ár og birt lista yfir þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem eru listuð hér að neðan.

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
  • Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt
  • Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár
  • Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
  • Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
  • Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 10 milljarða þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
  • Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
  • Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
  • Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
  • Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár

Lyfja er stolt yfir því að vera á þessum lista.

Við þökkum okkar frábæra starfsfólki og okkar góðu viðskiptavinum.

Plantagrein