Lyfju appið - fyrsta sinnar tegundar á Íslandi

Nýtt app Lyfju einfaldar og eykur öryggi við kaup á lyfjum. App Lyfju er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en ekkert apótek hér á landi býður upp á slíka þjónustu í dag. Markmið appsins er að auðvelda kaup á lyfjum á sem öruggastan máta. 

Lyfja_app_30092020_simi_prent-1Í Lyfju appinu getur viðskiptavinur gengið sjálfvirkt frá kaupum á lyfjum og fengið þau send heim án aukakostnaðar í helstu þéttbýliskjörnum landsins.
Einnig getur viðskiptavinurinn valið að sækja pöntunina í næsta apótek Lyfju í gegnum flýtiafgreiðslu sem tryggir hraðari afhendingu en þekkst hefur og eru afhendingarstaðirnir apótek Lyfju um land allt.

Í appinu er að auki hægt að fá yfirlit yfir allar lyfjaávísanir í rauntíma og upplýsingar um öll lyf, þ.e. virk innihaldsefni, ráðlagða notkun, aukaverkanir og milliverkanir.
Einn af valmöguleikum appsins eru kaup og afhending lyfja fyrir aðra í gegnum rafrænt umboð. Umboð til verslunar ávísanaskyldra lyfja hafa verið mikið í umræðunni en með Lyfju appinu hefur verið sérsmíðuð virkni sem gerir viðskiptavinum kleift að sækja og veita umboð til kaupa og afhendingar á lyfjum. Umboð með þessum hætti eru þau fyrstu sinnar tegundar hér á landi þar sem notandi skrifar rafrænt undir umboð þess efnis að annar aðili geti séð yfirlit ávísaðra lyfja og verslað þau fyrir hans hönd.

“Með tilkomu appsins viljum við bjóða upp á betri þjónustu og einfalda lyfjakaupin. Öryggi er haft í fyrirrúmi, en með notkun rafrænna skilríkja, rafrænu umboði og öruggri heimsendingu viljum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar í þeim efnum“, segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfju.

Mikil áhersla er lögð á rekjanleika heimsendinga en hægt er að fylgjast með sendingum frá því að þær eru afgreiddar í apóteki þangað til þær eru komnar í hendur viðskiptavina. Að auki skráir appið sjálfkrafa niður GPS punkta fyrir þá leið sem farið er með sendinguna, heldur utan um rithandarsýni viðtakanda og vistar upplýsingar um viðtakanda á öruggan hátt.

Til að styðja við það flókna kaupferli sem verslun með ávísunarskyld lyf eru, hefur Lyfja einnig smíðað spjallvirkni í appinu og komið upp þjónustuveri sem er til staðar fyrir viðskiptavini. Nálgast má ráðgjöf í gegnum netspjall frá sérfræðingum Lyfju en sú þjónusta er einnig í boði á vefsíðu Lyfju. Aðgengi að lyfjaupplýsingum er gert hátt undir höfði. 

Mynd: Björgvin Brynjólfsson, verkefnastjóri stafrænna lausna og Sigríður Margét Oddsdóttir, framkvæmdarstjóri Lyfju

“Við getum með sanni sagt að þetta er einfaldasta og öruggasta leiðin til að kaupa lyf á Íslandi í dag. Það er mikilvægt að viðskiptavinir okkar geti á einum stað fengið aðgang að lyfjaávísunum sínum, öllum lyfjum sem eru í boði á Íslandi, upplýsingar um virkni þeirra, verð, áhrif og aukaverkanir. Ef viðskiptavinum vantar ráð eða upplýsingar þá hafa þeir aðgang að sérfræðingum Lyfju í gegnum spjall í smáforritinu. Þú þarft aldrei að bíða aftur í röð í apóteki til þess eins að fá upplýsingar um að lyfið þitt sé ekki til“, segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfju.

Smáforritið er fáanlegt bæði í Google Play og App Store.

Lyfja er 70% í eigu SÍA III og 30% í eigu einkafjárfesta. SÍA III er framtakssjóður sem er í eigu lífeyrissjóða, fjármálafyrirtækja og fagfjárfesta. Einkafjárfestarnir eru tveir, Ingi Guðjónsson annar tveggja stofnanda Lyfju og Daníel Helgason, fjárfestir. Lyfja rekur 45 apótek og útibú um allt land og hjá Lyfju starfa ríflega 400 starfsmenn.