Heyrnarpróf á netinu

Almenn fræðsla Heyrn

Það tekur aðeins örfáar mínútur að taka heyrnarpróf Lyfju Heyrnar á netinu. Það eina sem þú þarft að gera er að koma þér vel fyrir á hljóðlátum stað og hafa heyrnartól við höndina. 

Það að taka einfalt heyrnarpróf á netinu er fyrsta skrefið í átt að því að kanna þína heyrnarheilsu.

Undirbúningur fyrir prófið á netinu

Heyrnarprófið er ókeypis og tekur aðeins þrjár mínútur. Regluleg heyrnarpróf eru mikilvæg af ýmsum ástæðum, þar á meðal að greina heyrnartap snemma, sem getur auðveldað meðhöndlun.

Ef niðurstöður þínar úr heyrnarprófinu benda til þess að þú sért með heyrnarskerðingu mælum við með að þú hafir samband við heyrnarfræðing til að fara í ítarlegri heyrnarmælingu. Heyrnarfræðingurinn getur þá í kjölfarið frætt þig um mögulegar ástæður heyrnarskerðingarinnar, tegund heyrnartaps og alvarleika þess. Ítarlega heyrnarmælingu þarf alltaf að framkvæma áður en hægt er að stilla heyrnartæki fyrir þig ef heyrnarskerðingin er þess eðlis.

Undirbúningur fyrir prófið:

  • Finndu rólegan stað
  • Settu á þig heyrnartól.
  • Kannaðu hvort umhverfishávaði hafi áhrif á mælinguna.
  • Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum

Af hverju að taka heyrnarprófið?

Heyrnarpróf á netinu býður upp á fljótlega og þægilega leið til að meta heyrn þína í þægilegu umhverfi heima fyrir. Það hjálpar til við að greina mögulega heyrnarskerðingu snemma og gefur ráðleggingar um næstu skref, svo sem að ráðfæra sig við heyrnarfræðing til að fá ítarlegra mat.

Það kemur ekki í staðinn fyrir ítarlega heyrnarmælingu, en er enga að síður aðgengilegt tæki til að öðlast innsýn í heyrn þína og taka fyrirbyggjandi skref ef þörf krefur.

Mikilvægi þess að prófa heyrnina

Vissir þú að jafnvel vægt heyrnartap getur tvöfaldað hættuna á heilabilun**? Algeng einkenni heyrnarskerðingar eru:

  • Erfiðleikar við að heyra í öðru fólki
  • Misskilningur varðandi hvað fólk segir
  • Að biðja fólk um að endurtaka sig
  • Hækka hljóðstyrk í útvarpi eða sjónvarpi
  • Erfiðleikar með að heyra í síma
  • Þreyta eða stress yfir að þurfa að einbeita sér á meðan hlustað er

Taktu heyrnarprófið á ensku eða dönsku með því að smella á myndirnar hér að neðan.

LyfjaHeyrn_Prof-Enska

LyfjaHeyrn_Prof-Danska

Þegar prófinu er lokið birtast niðurstöður að því loknu. Ef þörf er á að bregðast við þeim niðurstöðum hefur þú möguleika á að:

  • Bóka tíma hjá Lyfju Heyrn
  • Bóka símtal frá Lyfju Heyrn
  • Senda tölvupóst með niðurstöðunum þínum til Lyfju Heyrnar og starfsmenn verða í sambandi við þig í framhaldinu.

Lyfja Heyrn sérhæfir sig í að verja, mæla og bæta heyrn með framúrskarandi þjónustu heyrnarfræðings og sérþjálfaðs starfsfólks. Notaðu valmöguleikana hér fyrir neðan til að bóka tíma hjá Lyfju Heyrn.

Ef grunur leikur á skertri heyrn hjá barni á aldrinum 0-18 ára er best að leita til Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar, sérfræðinga í háls-, nef- og eyrnalækningum eða heimilislæknis.

Heimildir

* https://www.who.int/news-room/fact-sheets/detail/deafness-and-hearing-loss

** https://www.hopkinsmedicine.org/health/wellness-and-prevention/the-hidden-risks-of-hearing-loss