Locoidol (afskráð sept. 2009)
óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Hýdrókortisón bútýrat Klórkínaldól
Markaðsleyfishafi: óskráð
Locoidol inniheldur tvö virk efni, hýdrókortisón bútýrat, bólgueyðandi sterahormón og klórkínaldól, sýklaeyðandi efni. Locoidol er helst notað til að meðhöndla húðbólgur, exem og psoríasis og þegar húðin er einnig sýkt. Hýdrókortisón bútýrat er sterahormón sem myndast í nýrnahettunum undir eðlilegum kringumstæðum. Hýdrókortisón bútýrat bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið, og með þessum hætti dregur það úr bólgum, kláða og ofnæmiseinkennum. Einnig verkar hýdrókortisón bútýrat á æðar með því að draga þær saman. Sterar sem eru notaðir í húðlyf skiptast gróflega í 4 flokka eftir styrkleika. Hýdrókortisón bútýrat er meðalsterkur steri og tilheyrir flokki 2. Vegna þess að um er að ræða frekar vægan stera má nota Locoidol á viðkvæma húð þar sem sterkari sterar gætu valdið aukaverkunum. Klórkínaldól er sýklaeyðandi efni sem verkar á Candida tegundir, Dermatófýta og Gram-jákvæða sýkla.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Útvortis krem.
Venjulegar skammtastærðir:
Borið á í þunnu lagi 1-3svar á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir ástandi sjúklings.
Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Aðeins á að nota lyfið í nokkra daga í senn og draga skal úr notkun þess við batamerki, nema læknir tilgreini annað.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Stórir skammtar í langan tíma geta leitt til húðþynningar eða almennra aukaverkana. Hafðu samband við lækni ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni.
Langtímanotkun:
Meiri hætta er á að aukaverkanir lyfsins komi fram. Hýdrókortisón bútýrat getur valdið húðþynningu þegar það er notað útvortis í langan tíma.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru sjaldgæfar, sérstaklega þegar lyfið er aðeins notað í skamman tíma. Við meðhöndlun á stórum húðsvæðum geta almenn áhrif barkstera komið fram. Afleiðingarnar geta verið kringluleitara andlitslag, beinþynning og hömlun á vexti. Þetta er hins vegar mjög sjaldgæft.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Almenn steraáhrif | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Húðþynning | ![]() |
![]() |
|||||
Sýking í húð | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot og mikill kláði | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Venjulegar skammtastærðir. Gæta skal varúðar við notkun lyfsins.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Ef klórkínaldól kemst í snertingu við klæðnað getur það litað hann.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.