Oxeladín (afskráð apr. 2008)

óskráð | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Ammóníumklóríð Lakkrís Oxeladín

Markaðsleyfishafi: óskráð

Oxeladín er hóstastillandi og slímlosandi hóstamixtúra. Lyfið inniheldur tvö virk efni, oxeladín og ammóníumklóríð auk lakkrísrótar. Oxeladín losar slím úr öndunarfærum og dregur úr ertingu, en við það minnkar hósti. Ammóníumklóríð hefur sömuleiðis slímlosandi áhrif. Lakkrísrót stillir hósta, örvar slímseyti í barkanum sem aftur losar um límkennt kvefslímið svo að auðveldara verður að hósta því upp. Saman stuðla þessi þrjú efni að auknum hóstastillandi og slímlosandi áhrifum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Mixtúra til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 15 ml í senn 3-4 sinnum á dag. Börn eldri en 2ja ára: 5-10 ml í senn 3svar á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
30-60 mín.

Verkunartími:
6-8 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er ekki tekið reglulega heldur eftir þörfum, mest 3-4 sinnum á dag.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef mjög stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna

Meðganga:
Ekki nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Í venjulegum skömmtum hefur lyfið ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Mixtúran inniheldur 7,9% alkóhól og getur því aukið áhrif áfengis.

Íþróttir:
Inniheldur alkóhól. Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.