Pentavac

Bóluefni | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Barnaveiki mótefnavakar Haemophilus influenzae stofn B Kíghósta mótefnavakar Mænusóttarveirur Stífkrampa mótefnavakar

Markaðsleyfishafi: Sanofi | Skráð: 1. október, 1999

Bakterían sem veldur stífkrampa finnst víða í náttúrunni, t.d. í jarðvegi og húsdýraskít er því auðvelt að smitast af henni ef bakterían kemst í opið sár. Bakterían framleiðir eitur sem veldur því að vöðvar herpast saman og stífna og getur þetta ástand valdið dauða ef ekkert er aðhafst. Bakterían sem veldur barnaveiki framleiðir eitur sem getur verið skaðlegt vefjum líkamans, eins og t.d. hjartavöðva og getur þar af leiðandi valdið dauða. Bakterían sem orsakar kíghósta berst manna á milli með úðasmiti. Kíghósti getur verið erfiður og langdreginn og jafnvel lífshættulegur fyrir ungbörn. Mænusótt eða lömunarveiki er sjúkdómur sem orsakaður er af veiru. Í flestum tilfellum eru einkenni sjúkdómsins væg en í sumum tilfellum getur hann orsakað lömun sem getur leitt til dauða. Helstu smitleiðir veirunnar eru með saurmengun, fæðu og vökva og jafnvel úðasmiti. Haemophilus influenzae b (Hib) er baktería sem getur orsakað alvarlega sjúkdóma, svo sem heilahimnubólgu, barkabólgu, lungnabólgu, blóðsýkingu og liðbólgur. Pentavac vekur upp mótefnasvörun í líkamanum án þess að fólk veikist af þessum sjúkdómum og veitir þannig vörn gegn þeim.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva.

Venjulegar skammtastærðir:
Upphafsbólusetning: Gefnir eru þrír skammtar með eins til tveggja mánaða millibili. Viðhaldsbólusetning er gefin innan 2ja ára aldurs.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Nánast full vörn fæst eftir upphafsbólusetningu.

Verkunartími:
Vörn dugar í u.þ.b. 10 ár.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Ef seinni skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Flestar aukaverkanir koma innan 48 klst. og ganga sjálfkrafa til baka.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hár hiti        
Hiti          
Krampar        
Lítil svörun við áreiti        
Lystarleysi          
Óstöðvandi grátur        
Pirringur          
Staðbundinn roði og herslismyndun á stungustað          
Syfja, svefnörðugleikar          
Uppþemba, niðurgangur          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi lyfjameðferð geta fengið minni mótefnasvörun.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hita eða sýkingu
  • þú hafir áður fengið alvarlegar aukaverkanir af bólusetningu
  • þú sért með skert ónæmiskerfi
  • þú hafir einhvern tíma fengið krampa
  • þú sért með heilakvilla

Meðganga:
Lyfið er ekki ætlað konum á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið er ekki ætlað konum með barn á brjósti.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:
Lyfið er ekki ætlað eldra fólki.

Akstur:
Á ekki við.

Áfengi:
Á ekki við.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa undir húð eða í æð.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.