Prevenar 13

Bóluefni | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Pneumokokka mótefnavakar

Markaðsleyfishafi: Wyeth Lederle | Skráð: 1. apríl, 2010

Pneumokokkar eru bakteríur sem eru ein algengasta orsök lungnabólgu en einnig geta þær valdið heilahimnubólgu, blóðsýkingu, miðeyrnabólgu og fleiri sjúkdómum. Bólusetningar gegn pneumokokkum eru nær eingöngu framkvæmdar hjá þeim sem taldir eru vera í áhættuhópi fyrir slíkum sýkingum. Í þeim hópi eru t.d. miltislausir einstaklingar, einstaklingar með skert ónæmiskerfi, langvarandi hjarta-, lungna- og nýrnasjúkdóm, með sykursýki eða áfengissýki og fólk sem býr eða vinnur í umhverfi þar sem aukin hætta er á pneumokokkasýkingum. Prevenar 13 er bóluefni sem myndar vörn gegn 13 mismunandi tegundum pneumokokka.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva.

Venjulegar skammtastærðir:
Börn 6 vikna - 6 mánaða: Börn 2-6 mánaða: 3 skammtar gefnir með að a.m.k. mánaðar millibili. Fjórði skammturinn er gefinn á öðru aldursári. Börn 7-11 mánaða: 2 skammtar gefnir með a.m.k. mánaðar millibili. Þriðji skammturinn er gefinn á öðru aldursári. Börn 1-2 ára: 2 skammtar gefnir með a.m.k. 2ja mánaða millibili. Börn 2-5 ára: 1 stakur skammtur. Fullorðnir: 1 stakur skammtur.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Full verkun fæst venjulega eftir 10-15 daga.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Ef seinni skammtur gleymist ber að gefa hann um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Viðbrögð á stungustað og hiti eru algengustu aukaverkanir lyfsins.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hiti          
Krampar        
Lítil svörun við áreiti        
Lystarleysi          
Pirringur          
Roði, bólga og eymsli á stungustað          
Svefntruflanir, svefnhöfgi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Lyfið má ekki blanda í sömu sprautu við önnur bóluefni. Ef nota á önnur bóluefni þarf að nota aðra stungustaði. Þeir sem eru á ónæmisbælandi lyfjameðferð geta fengið minni mótefnasvörun.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingasjúkdóm
  • þú sért með hita eða sýkingu
  • þú sért með skert ónæmiskerfi
  • þú hafir einhvern tíma fengið krampa

Meðganga:
Lyfið er ekki ætlað konum á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið er ekki ætlað konum með barn á brjósti.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir

Akstur:
Á ekki við.

Áfengi:
Á ekki við.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.