Fræðslugreinar

Almenn fræðsla Fræðslumyndbönd Hreyfing : Hvað er flot?

Valdís eigandi Flothettu talar um fræðin á bakvið flot og hversu góð áhrif það hefur á líkamann. Flothetta er íslensk hönnun, gerð til að upplifa slökun og vellíðan í vatni. Hugmyndin er innblásin af vatnsauðlegð þjóðarinnar og reynsluheimi Íslendinga sem alist hafa upp í nánum tengslum við vatnið. Flothetta veitir líkamanum fullkominn flotstuðning í vatni og gerir manni kleift að upplifa nærandi slökun í þyngdarleysi vatnssins. 

Almenn fræðsla Fræðslumyndbönd Geðheilsa : Hvernig hlúum við best að andlegu hliðinni?

Helga Arnardóttir, MSc í félags- og heilsusálfræði fjallar um andlega heilsu og geðrækt og fer í gegnum nokkrar aðferðir til að hlúa að eigin geðheilsu og vellíðan á Facebook síðu Lyfju 15. mars kl. 11.

Fræðslumyndbönd : Hvað eru ópíóðar?

Guðrúnu Kjartansdóttir lyfjafræðingur svarar spurningunni í þessu fræðslumyndbandi Talað hefur verið um oxýcontínfaraldur vegna fjölda dauðsfalla sem það hefur valdið undanfarin mörg ár. 

Fræðslumyndbönd : Svefnvenjur barna

Kristín Björg Flygenring, sérfræðingur í barnahjúkrun, starfar með fjölskyldum barna með svefnvanda hjá Barnaspítala Hringsins og hjá svefnráðgjöf.is. Kristín veitir ráðleggingar um jákvæðar svefnvenjur barna.

Fræðslumyndbönd : Sykursýki 2 | Hvað viltu vita?

Dr. Jens Kristján Guðmundsson háls-, nef- og eyrnalæknir fjallar um sykursýki 2. Sykursýki er einn af okkar algengustu efnaskiptasjúkdómum og helst í hendur við hjarta- og æðasjúkdóma og styttra æviskeið. Um 11.000 Íslendinga eru með sykursýki, þar af er sykursýki af tegund 2 í um 90% tilfella.

Fræðslumyndbönd : Hvernig er blóðþrýstingurinn?

Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, fjallar hér um háan blóðþrýsting. Í erindinu verður farið yfir hvers vegna mikilvægt er að greina og meðhöndla hann og teknir fyrir lífshættir sem þarf að tileinka sér til að halda þrýstingnum góðum.

Fræðslumyndbönd : Hvað er melatónín?

Guðrún Kjartansdóttir lyfjafræðingur fjallar um melatónín. Svefnleysi getur verið ýmiss konar. Fólk getur átt í erfiðleikum með að sofna, haldast sofandi eða að svefngæði séu léleg eða óhagstæð. Öllu þessu fylgir oftast mikil dagþreyta.

Fræðslumyndbönd : Ertu með þvagfærasýkingu?

Anna Sólmundsdóttir lyfjafræðingur hjá Lyfju gefur góð ráð við þvagfærasýkingu. Yfirleitt er það þarmabakterían E.Coli sem veldur þvagfærasýkingum. Dæmigerð einkenni þvagfærasýkingar eru tíð þvaglát, gjarnan með verkjum, sviða og illa lyktandi þvagi.

Fræðslumyndbönd : Ertu á sýklalyfjakúr?

Ingibjörg Arnardóttir lyfjafræðingur hjá Lyfju gaf góð ráð fyrir fullorðna og börn sem eru á sýklalyfjum. Mikilvægt er að sýklalyf séu notuð rétt og bara þegar þeirra er brýn þörf. Sýklalyf virka eingöngu á sýkingar af völdum baktería.

Fræðslumyndbönd : Ertu með frjókornaofnæmi?

Þórður Hermannsson lyfjafræðingur gefur góð ráð við frjókornaofnæmi. Hver eru einkennin? Fyrirbyggjandi ráð. Bólusetning gegn ofnæmi. Hvenær er tímabært að leita til læknis?

Fræðslumyndbönd : Húðin og lífrænn lífsstíll

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í umhverfislæknisfræði fjallar um mikilvægi þess að vera upplýstur neytandi, þ.e. forðast skaðleg efnaáhrif á líkama og húð með þekkingu að vopni og sporna þar með við ýmsum kvillum og vandamálum.

Fræðslumyndbönd : Bólur | Hvað er til ráða?

Arna Björk húðsjúkdómalæknir fjallar um bólusjúkdóm í húðinni eða acne . Bólur eru mjög algengar og eitthvað sem flestir þurfa að kljást við einhvern tímann á lífsleiðinni. 

Fræðslumyndbönd : Rósroði | Hvað er til ráða?

Dr. Jenna Huld fjallar um rósroða sem er langvarandi bólgusjúkdómur í andliti og er sérstaklega algengur á Íslandi. Hún fer yfir einkenni sjúkdómsins og hvað ber að varast.

Fræðslumyndbönd : Sólarvörn er mikilvæg fyrir heilbrigði húðar

Dr. Ragna Hlín fjallar um mikilvægi sólarvarna sem forvörn gegn uppkomu húðkrabbameina og ótímabærri öldrun húðarinnar og ráð til að viðhalda heilbrigðri húð.

Fræðslumyndbönd : Öndum betur

Björgvin Páll leiðir okkur í gegnum öndunaræfingar sem henta vel í bílnum, fyrir svefninn eða þegar streita eða kvíði hellist yfir okkur. Verðum aðeins betri í að anda betur. Er þín öndun nægilega skilvirk?

Fræðslumyndbönd : Mikilvægi skilvirkrar öndunar

Björgvin Páll ræðir um mikilvægi skilvirkrar öndunar og leiðir okkur í gegnum skemmtilegar öndunaræfingar.

Fræðslumyndbönd : Heima er best | Núvitundaræfingar

Gyða Dröfn Tryggvadóttir færðir um núvitund. Núvitund er að vera til staðar í eigin lífi – hér og nú. Tengja við okkar eigin hug og hjarta, tilfinningar sem við sem manneskjur eigum sameiginlegar, s.s. sárskauka, ótta, reiði, gleði og ást.

Fræðslumyndbönd : Núvitund með Guðna

Róaðu hugann með Guðna Gunnarssyni. Í myndbandinu leiðir Guðni okkur í gegnum núvitundaræfingar sem hjálpa okkur að ná innri ró og auka vellíðan.

Fræðslumyndbönd : Viltu heilbrigða meltingarflóru?

Birna Ásbjörnsdóttir fer yfir mikilvægi góðrar meltingarflóru og hvernig hún hefur áhrif á líkamlega og andlega líðan. Birna gefur einnig góð ráð til að bæta meltingarflóruna

Inga María Hlíðar ljósmóðir

Fræðslumyndbönd : Undirbúningur fyrir fæðingu

Inga María Hlíðar ljósmóðir gefur góð ráð til að undirbúa líkama og sál fyrir fæðingu. Hún leggur sérstaka áherslu á viðhorf í garð fæðingar sem hefur sterka tengingu við upplifun af fæðingu, auk mikilvægi stuðnings í fæðingu.

Fræðslumyndbönd : Svefnráðgjöf fyrir 0-2ja ára börn

 Arna Skúladóttir hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í barnahjúkrun með svefnvandamál sem undirsérgrein veitir foreldrum 0-2ja ára barna svefnráðgjöf.

Fræðslumyndbönd : Covid19 sjálfspróf

Sjálfspróf geta verið hluti af lausninni til að halda samfélaginu okkar gangandi á tímum Covid19 en prófin eru tilvalin áður en þú ferð á mannamót eða ef þú ert í samskiptum við einstaklinga í áhættuhópi.