Ismo

Hjartasjúkdómalyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Ísósorbíð mónónítrat

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 1. október, 1999

Ísósorbíð mónónítrat, virka efnið í Ismo, er æðavíkkandi efni sem hefur mest áhrif á bláæðar og kransæðar. Víkkun bláæða veldur því að blóðflæði til hjartans minnkar en þá dregur úr álagi á hjartað og súrefnisþörf hjartavöðvans. Víkkun kransæða veldur auknu blóðflæði um hjartavöðva. Efnið hefur sama verkunarmáta og glýcerýlnítrat (nítróglýserín), sem er eldra lyf, en það er ekki eins viðkvæmt fyrir hita og raka og geymist því betur. Ismo er notað við hjartaöng, bæði til að koma í veg fyrir hana og að lina verki. Ef lyfið er notað stöðugt í lengri tíma myndast þol gegn æðavíkkandi áhrifum þess. Hægt er að komast hjá þessari þolmyndun með því að gera hæfilega langt hlé á notkun lyfsins á hverjum sólarhring.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Forðatöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
60-120 mg að morgni. Töflunum má skipta í tvennt. Gleypist með vatnsglasi. Má hvorki tyggja þær né mylja.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
45-60 mín.

Verkunartími:
A.m.k. 12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita, varið ljósi og raka, þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef færri en 2 klst. eru til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hjartaöng getur komið fram þegar töku lyfsins er hætt skyndilega eftir stöðuga notkun. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Stórir skammtar geta valdið áköfum höfuðverk, svima, ógleði eða skertri meðvitund. Hafðu samband við lækni ef stórir skammtar eru teknir.

Langtímanotkun:
Áhrif lyfsins minnka að einhverju leyti með tímanum, sérstaklega ef það er mikið notað. Æskilegt er að fylgjast reglulega með blóðþrýstingi á meðan lyfið er tekið.


Aukaverkanir

Flestar aukaverkanir lyfsins eru skammtaháðar, þ.e. tíðari eða verri eftir því sem skammtar eru stærri. Algengustu aukaverkanirnar eru tengdar beint æðavíkkandi áhrifum þess og lækkun blóðþrýstings.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hraður hjartsláttur          
Höfuðverkur, svimi          
Lágur blóðþrýstingur          
Ógleði          
Útbrot, kláði          
Yfirlið          

Milliverkanir

Lyfið eykur áhrif blóðþrýstingslækkandi lyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með lágan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blóðleysi

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Viðkvæmara fyrir sumum aukaverkunum lyfsins.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og skert aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Eykur æðavíkkandi áhrif lyfsins og getur valdið blóðþrýstingsfalli. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.