Spurðu sérfræðinginn
Lyfjafræðingar Lyfju svara fyrirspurnum um flest allt sem lýtur að heilbrigði og heilsu.
Senda inn spurningu Sjá allar spurningar og svörÞað fer eflaust ekki farið fram hjá neinum þegar lúsmýið er mætt á stjá og hefur dreift sér víða um land með tilheyrandi óþægindum og vandræðum. Lúsmý eru afar litlar, fínlegar og illa sýnilegar flugur sem finnast víða um land.
Helga Arnardóttir, MSc í félags- og heilsusálfræði fjallar um andlega heilsu og geðrækt og fer í gegnum nokkrar aðferðir til að hlúa að eigin geðheilsu og vellíðan á Facebook síðu Lyfju 15. mars kl. 11.
Bætum andlega heilsu og hlæjum saman! Að hlæja er talið bæta andlega heilsu ásamt því að njóta útivistar í náttúrunni. Okkur hjá Lyfju langar að bjóða ykkur á viðburð sem tengir þetta tvennt saman. Við bjóðum því á uppistand útí skógi þann 29. mars kl. 18:00 með Sögu Garðardóttur.
Neföndun er ummyndandi. Hún bætir svefn, einbeitingu og frammistöðu í íþróttum, hjálpar til við að halda heilum og heilbrigðum tönnum og tannholdi, eykur líkur á að andlitið vaxi og þroskist rétt og stuðlar að beinum tönnum.
Við þekkjum vel orðið líkamsrækt og erum meðvituð um mikilvægi þess að hreyfa líkamann og gera æfingar sem efla líkamlega heilsu. Orðið geðrækt er kannski ekki alveg eins vel þekkt. Í stuttu máli felst geðrækt í því að hlúa að geðheilsunni eða andlegri heilsu með aðferðum sem miða að því að efla aðstæður, færni og lífsvenjur sem stuðla að aukinni andlegri vellíðan og heilsu.
Í dag hefst framtíðin
Öll viljum við vaxa í átt að vellíðan en mætum alls konar hindrunum.
Þess vegna þurfum við ferðafélaga sem styður og hjálpar.
Hvort sem við glímum við erfiðleika eða viljum einfaldlega meiri lífsgæði.
Eitt líf – óteljandi byrjanir.
Holl næring styður við alhliða heilbrigði, veitir andlega og líkamlega vellíðan ásamt því að lengja líf og bæta. Fjölbreytt, lífræn og óunnin fæða er best fyrir líkamann okkar. Mundu að njóta matarins því það er hluti af leiknum.
Svefn er lykilþáttur í heilbrigði, hann er nauðsynlegur fyrir andlega og líkamlega starfsemi. Grundvöllur að góðri heilsu og vellíðan eru 7-9 klukkustundir af gæðasvefni daglega.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir fræðir um núvitund en hún hefur iðkað Zen hugleiðslu síðastliðin 22 ár undir handleiðslu Zen meistarans Jakusho Kwong Roshi. Gyða er með með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu (EMPH) frá Háskólanum í Reykjavík.
Verðum aðeins betri í að anda betur. Björgvin Páll leiðir okkur í gegnum öndunaræfingar sem henta vel í bílnum, fyrir svefninn eða þegar streita eða kvíði hellist yfir okkur.
Járn sjálfsprófið er gagnlegt til að athuga járnforða líkamans. Prófið er ónæmisfrumufræðilegt tæki sem greinir ferritíngildi í blóði.
D-vítamín sjálfsprófiið er ónæmismæling sem byggir á meginreglunni um samkeppnispróteinabindingu, sem getur sýnt fram á óhóflegt, nægilegt, ófullnægjandi eða skort á D-vítamíni í blóði. Prófið er fyrir þá sem þreytast auðveldlega, fá lítið sólarljós, innbyrgða mat með litlu D vítamíni svo eitthvað sé nefnt.
Margar konur finna fyrir þurrki í leggöngum einhvern tímann á lífsleiðinni. Þurrkur í leggöngum stafar oft af skorti á kvenhormóninu estrógeni og því er algengt að konur finni fyrir þessum einkennum eftir tíðahvörf. Hætta á leggangaþurrki eykst hjá konum: - Ef eggjastokkar hafa verið fjarlægðir - Með barn á brjósti - Í krabbameinslyfjameðferð - Sem taka ýmis lyf sem hafa áhrif á hormónabúskapinn, eins og ákveðin getnaðarvarnalyf (Depo-Provera) eða lyf sem notuð eru til að meðhöndla legslímuflakk
Góð meltingarflóra getur haft mikil áhrif á líkamlega og andlega líðan þína. Hún styrkir ónæmiskerfið, en yfir 70% af því er að finna í meltingarveginum.
Eins og fram kom í fyrri grein ( Heilbrigð húð | Næring og heilsa ) um það hvernig næring hefur áhrif á húðheilsu þá þarf húðin, eins og önnur líffæri, á góðri næringu að halda til að viðhalda sínu hlutverki og fæðuval okkar virðist geta haft jávkæð áhrif á hana. Heilbrigð og falleg húð gefur vel til kynna hvernig líkami þinn lítur út að innan og hvernig honum líður.
Oftast er talað um 6 húðgerðir og hér eru nokkur einkenni til að auðvelda þér að greina húðgerðina þína rétt.
Lúsmý hefur náð fótfestu á Íslandi og er til vandræða einkum fyrripart sumars. Flugan er agnarsmá og getur því verið erfitt að greina hana með berum augum. Lúsmý heldur sig þar sem er skjól og skuggi. Það leggst til atlögu að nóttu til og verður fólk því ekki vart við bitin fyrr en kláði og bólga koma fram. Bitin eru ekki hættuleg en geta valdið talsverðum óþægindum sérstaklega ef þau eru mörg.
Húðin er stærsta líffæri mannslíkamans en hennar meginhlutverk eru að stjórna líkamshita og verja hin ýmsu kerfi, innri líffæri, vöðva og vefi líkamans fyrir umhverfisþáttum sem geta haft skaðleg áhrif á þá.
Una Emilsdóttir sérnámslæknir í umhverfislæknisfræði, með sérstakan áhuga á fyrirbyggingingu sjúkdóma fjallar um mikilvægi þess að vera upplýstur neytandi, þ.e. forðast skaðleg efnaáhrif á líkama og húð með þekkingu að vopni og sporna þar með við ýmsum kvillum og vandamálum.
Húðin er stærsta líffæri líkamans og í henni finnast m.a. æðar, taugaendar, svitakirtlar, hársekkir o.fl. Hún er í 3 lögum (yfirhúð, leðurhúð og undirhúð). Mikilvægt er að passa vel uppá húðina og vernda hana eins og hægt er svo hún geti sinnt margvíslegum hlutverkum sínum.