Equasym (afskráð des. 2008)
Örvandi lyf og lyf sem efla heilastarfsemi | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Metýlfenídat
Markaðsleyfishafi: óskráð
Metýlfenídat, virka efnið í Equasym, er örvandi lyf skylt amfetamíni. Áhrif þess eru fyrst og fremst á miðtaugakerfið þar sem það eykur athygli, einbeitingu og sjálfstraust, en minnkar þreytutilfinningu. Vellíðan og aukin afköst fylgja oft töku lyfsins. Metýlfenídat er oftast notað við athyglisbresti með ofvirkni í börnum, en þar sem það eykur einbeitingu og athygli getur það auðveldað ofvirkum börnum nám og samskipti við aðra. Í sumum tilfellum er lyfið notað við sömu einkennum hjá fullorðnum, svo og við síþreytu. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef lyfið er tekið í langan tíma fylgir oft depurð og þreyta þegar töku lyfsins er hætt. Lyfið dregur úr matarlyst og veldur oft þyngdartapi. Þetta getur haft áhrif á vöxt barna sem taka lyfið lengi.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
5-60 mg á dag. Töflurnar takist með mat og vatnsglasi.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1 klst.
Verkunartími:
Misjafn eftir sjúklingum.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Koffein getur aukið örvandi áhrif lyfsins. Ekki neyta koffeins á meðan lyfið er tekið.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef tekinn er fleiri en einn skammtur á dag skaltu taka skammt þegar þú manst eftir honum og láta síðan sama tíma líða á milli skammta og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu. Lyfið getur valdið svefntruflunum sé það tekið seinni hluta dags eða að kvöldi.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Fráhvarfseinkenni geta komið fram þegar töku lyfsins er hætt og því þarf oft að minnka skammta smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef vart verður við einkenni eins og mjög hraðan eða óreglulegan hjartslátt, hjartsláttarónot, verk fyrir brjósti, háan hita eða krampa skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
Langtímanotkun:
Minnkuð matarlyst af völdum lyfsins getur haft áhrif á vöxt barna ef þau taka lyfið lengi. Þol getur myndast við áhrifum lyfsins.
Aukaverkanir
Algengar aukaverkanir eru yfirleitt vægar og hverfa oftast nær eftir nokkurra daga meðferð. Taugaveiklun og svefnleysi kemur stundum fyrir í upphafi meðferðar. Ef þetta hverfur ekki má vera að læknirinn minnki skammtinn eða breyti hvenær lyfið er tekið inn.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | ![]() |
![]() |
|||||
Hiti, liðverkir, hárlos | ![]() |
![]() |
|||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur | ![]() |
![]() |
|||||
Hreyfitruflanir | ![]() |
![]() |
|||||
Höfuðverkur, syfja, munnþurrkur | ![]() |
![]() |
|||||
Krampar | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Kvíði, óróleiki, taugaveiklun, þunglyndi | ![]() |
![]() |
|||||
Minnkuð matarlyst | ![]() |
![]() |
|||||
Munnþurrkur, sjóntruflanir | ![]() |
![]() |
|||||
Ofvirkni eykst | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Ógleði, uppköst, kviðverkir, meltingartruflanir | ![]() |
![]() |
|||||
Svefnleysi, svefndrungi, sundl | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot og mikill kláði | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Metýlfenídat getur haft áhrif á virkni blóðþrýstingslækkandi lyfja.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Alphagan
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Azilect
- Brimonidin Bluefish
- Elvanse Adult
- Glimeryl
- Klomipramin Viatris
- Mirvaso
- Noritren
- Rasagilin Krka
- Simbrinza
- Vildagliptin/Metformin Krka
- Volidax
- Warfarin Teva
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú hafir einhvern tíma misnotað lyf eða áfengi
- þú sért með gláku
- þú sért með háan blóðþrýsting eða hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
- þú sért með Tourettes heilkenni
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú þjáist af kvíða
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólk:
Lyfið er ekki ætlað eldra fólki.
Akstur:
Lyfið getur valdið sundli og syfju. Gæta skal varúðar við akstur þegar lyfið er notað, sérstaklega í upphafi meðferðar.
Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Bannað í keppni.
Fíknarvandamál:
Equasym getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.
Annað:
Lyfið inniheldur mjólkursykur.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.