Edoxaban Krka

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Segavarnarlyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: EdoxabanSkráð 1. júlí 2025

Edoxaban Krka inniheldur virka efnið edoxaban og tilheyrir flokki lyfja sem nefnast segavarnarlyf. Lyfið stuðlar að því að koma í veg fyrir blóðtappamyndun með því að hindra virkni þáttar Xa, sem er mikilvægur þáttur við blóðstorknun. Edoxaban Krka er notað hjá fullorðnum til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa í heila (slags) og öðrum æðum líkamans hjá þeim sem hafa ákveðna tegund af óreglulegum hjartslætti sem nefnist „gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum“ og hafa að minnsta kosti einn áhættuþátt auk þess. Lyfið er líka notað til meðferðar við blóðtöppum í bláæðum í fótleggjum (segamyndun í djúplægum bláæðum) og í æðum í lungum (lungnasegarek), og til að hindra endurkomu blóðtappa í æðum í fótleggjum og/eða lungum.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir60 mg einu sinni á sólarhring, Edoxaban Krka má taka með eða án matar.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram3-4 klst
VerkunartímiUm 7-10 dagar.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsAukin hætta er á blóðtappamyndun þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturOfskömmtun getur lengt blæðingartíma. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða, en reglulegt eftirlit hjá lækni er nauðsynlegt.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins eru blóðnasir, blóðmiga og blóðleysi.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Blæðing
    Leitið til læknis
  • Blæðing úr leggöngum
    Leitið til læknis
  • Blóðleysi, blóð í þvagi
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, sundl
    Leitið til læknis
  • Magaverkur, ógleði
    Leitið til læknis
  • Marblettir eða blæðingar undir húð
    Leitið til læknis
  • Útbrot, kláði
    Leitið til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með blæðingartilhneigingu
  • þú sért með háan blóðþrýsting
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir nýlega fengið heilablæðingu
MeðgangaEkki má nota lyfið á meðgöngu.
BrjóstagjöfAnnaðhvort verður ráðlagt að hætta brjóstagjöf eða hætta töku/hefja ekki notkun lyfsins.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegir skammtar.
AksturLyfið hefur engin eða óveruleg áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.