Quetiapin Viatris

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sefandi lyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: QuetíapínSkráð 1. mars 2008

Quetiapin Viatris inniheldur virka efnið quetíapín. Lyfið er sefandi og er notað til að meðhöndla geðklofa, meðal til alvarlegar geðhæðarlotur og alvarlegar geðlægðarlotur. Það hefur áhrif á mörg boðefni í heila eins og serótónín og dópamín. Quetíapín er óvenjulegt sefandi lyf og notkun þess fylgja vægar hreyfitruflanir sem líkjast einkennum parkinsonsveiki og ósjálfráðra hreyfinga. Álitið er að með sefandi lyfjum, sem aðeins vægar hreyfitruflanir fylgja, sé síður hætta á að síðkomnar hreyfitruflanir láti kræla á sér.

Tafla 25 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir25-400 mg í senn 2svar á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan viku.
VerkunartímiAllt að 12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Þegar meðferð er hætt skal minnka skammta smám saman á a.m.k. 1-2 vikum til að draga úr líkum á fráhvarfseinkennum.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunEkkert bendir til annars en að notkun lyfsins í lengri tíma sé án vandkvæða. Síðkomnar hreyfitruflanir (tardive dyskinesia), sem lýsa sér sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum og eru algengar aukaverkanir langtímanotkunar margra sefandi lyfja, virðast ekki fylgja inntöku quetíapíns.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er svefnhöfgi sem kemur mest fram við upphaf notkunar, við áframhaldandi notkun minnkar sú aukaverkun. Við notkun lyfsins hefur sést lækkun á magni skjaldkirtilshormóna á fyrstu vikum notkunar en lækkunin verður ekki frekari við áframhaldandi notkun.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Aukin matarlyst
    Leitið til læknis
  • Bólga í nefi, mæði
    Leitið til læknis
  • Hækkun á blóðsykri
    Leitið til læknis
  • Hiti
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, þróttleysi
    Leitið til læknis
  • Hraður hjartsláttur
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, uppköst
    Leitið til læknis
  • Munnþurrkur, hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Óeðlilegir draumar, martraðir
    Leitið til læknis
  • Skapstyggð
    Leitið til læknis
  • Svefnhöfgi, yfirlið, sundl
    Leitið til læknis
  • Svimi þegar staðið er upp
    Leitið til læknis
  • Tormæli
    Leitið til læknis
  • Þokusýn
    Leitið til læknis
  • Þyngdaraukning, bjúgur
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Krampar
    Leitið strax til læknis
  • Sjálfsvígshugsanir og -hegðun
    Leitið strax til læknis
  • Ofhiti, breytt andlegt ástand, vöðvastífni, ósjálfráður óstöðugleiki
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Forðast ætti samhliða notkun sefandi lyfja. Greipaldinsafi hefur áhrif á virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með of lágan blóðþrýsting
  • þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað að hve miklu leyti lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólkMinni skammtar eru oft notaðir.
AksturLyfið getur haft slævandi áhrif og um leið haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiGetur haft áhrif á virkni lyfsins og skal nota með varúð.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.