Inegy

Blóðfitulækkandi lyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Ezetimíb Simvastatín

Markaðsleyfishafi: N. V. Organon | Skráð: 1. september, 2005

Inegy, sem inniheldur virku efnin ezetimíb og simvastatín, er gefið sjúklingum með of hátt kólesteról í blóði. Það er notað til að meðhöndla arfblendna og arfhreina ættgenga kólesterólhækkun sem og kólesterólhækkun sem ekki er ættgeng. Lyfið er gefið þar sem notkun samsetts lyfs er talin viðeigandi. Ezetimíb tilheyrir nýjum flokki fitulækkandi lyfja sem hindra sértækt frásog kólesteróls og skyldra jurtasteróla úr þörmum. Það leiðir til minni flutnings kólesteróls frá þörmum til lifrar. Simvastatín er statín-lyf sem dregur úr myndun kólesteróls í lifrinni og saman veita þessi lyf viðbótarlækkun kólesteróls.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
1 tafla að kvöldi. Hver tafla inniheldur 10 mg ezetimíb og 10-80 mg simvastatín.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 1-2 klst.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Minni fituneysla er hluti af meðferðinni, bæði fyrir og meðan á meðferð stendur. Forðast skal að drekka greipaldinsafa meðan á meðferð með Inegy stendur.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á því að sjúkdómur versni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Upplýsingar um áhrif af langtímanotkun eru ekki fyrir hendi.


Aukaverkanir

Lyfið þolist almennt vel og aukaverkanir þess eru venjulega vægar og tímabundnar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur          
Kviðverkir, niðurgangur, vindgangur          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkir, eymsli og máttleysi í vöðvum        
Þróttleysi          

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir átt við áfengisvandamál að stríða
  • þú sért með sögu um vöðvakvilla, eða fjölskyldusaga um ættgengan vöðvakvilla
  • þú sért með sögu um vöðvaeitrun vegna notkunar statíns eða fíbrats

Meðganga:
Lyfið getur valdið fósturskemmdum og því á ekki að nota það á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Getur aukið líkur á lifrarvandamálum. Gæta ætti hófsemi í áfengisdrykkju.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.