Metformin Sandoz

Sykursýkilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Metformín

Markaðsleyfishafi: Sandoz | Skráð: 1. janúar, 2016

Metformin Sandoz, sem inniheldur virka efnið metformín, er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og er nauðsynlegt til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Metformín er notað við sykursýki af tegund II, en hefur ekki áhrif á insúlínháða sykursýki. Það er aðeins notað ef breytt mataræði hefur ekki haft áhrif á gang sjúkdómsins. Verkunarmáti metformíns er ekki að fullu þekktur en það eykur áhrif insúlíns á vefi líkamans, minnkar sykurnýmyndun í lifur og upptöku sykurs úr þörmum. Í venjulegum skömmtum sjást áhrif þess á blóðsykur, en aðeins hjá sykursjúkum og ekki heilbrigðum. Þar sem lyfið eykur ekki framleiðslu insúlíns er lítil hætta á því að blóðsykur lækki, en of mikil lækkun hans getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Of mikil lækkun á blóðsykri getur orðið ef lítillar fæðu er neytt, eftir mikla áreynslu eða ef önnur blóðsykurslækkandi lyf eru tekin samtímis metformíni. Ein af aukaverkunum metformíns er að draga úr matarlyst, sem er æskilegt í þeim tilfellum þegar sjúklingar eru of þungir. Blóðfita og kólesteról í blóði getur líka minnkað þegar metformín er tekið og kemur sér líka vel fyrir þennan sjúklingahóp.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
500-1000 mg í senn 2-3svar á dag. Takist með eða rétt eftir máltíð. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki tyggja þær né mylja.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1 klst. 2 vikur geta liðið þar til náðst hefur stjórn á sykursýkinni.

Verkunartími:
8-12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er þáttur í meðferð.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar.

Langtímanotkun:
Fylgjast þarf með magni B\u003csub\u003e12\u003c/sub\u003e-vítamíns í blóði árlega þar sem lyfið getur dregið úr nýtingu þess úr fæðu. Vegna sykursýkinnar er einnig æskilegast að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi. Láttu lækni og tannlækni vita að þú takir lyfið fyrir aðgerð.


Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru óþægindi frá meltingarvegi. Í flestum tilfellum eru þessar aukaverkanir verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Ef meðferð er hafin með litlum skömmtum, sem eru smám saman auknir, og lyfið er tekið með mat þolist það betur. Sjaldgæft er að hætta þurfi notkun lyfsins vegna aukaverkana.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Kuldahrollur, mikil ógleði eða uppköst, hröð öndun      
Kviðverkir, niðurgangur          
Lystarleysi          
Ógleði og uppköst          
Truflun á bragðskyni          
Útbrot, kláði          

Milliverkanir

Sykurbarksterar (sum húðlyf og bólgueyðandi lyf), beta-2 agonistar (sum astmalyf) og þvagræsilyf hafa sykurhækkandi verkun. Láttu vita að þú sért á þessu lyfi ef þú þarft að fara geislarannsókn með joðuðu skuggaefni. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir fengið hjartabilun
  • þú neytir áfengis í miklum mæli
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára.

Eldra fólk:
Auknar líkur eru á aukaverkunum. Minni skammtar eru notaðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni en ef merki eru um of lágan blóðsykur ætti ekki að stjórna ökutæki.

Áfengi:
Getur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis. Það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því að forðast áfengi.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.