Terbisil (afskráð jan. 2007)
Terbisil er sveppalyf við sveppasýkingum í húð eða undir nöglum. Eftir inntöku safnast lyfið fyrir í fituvef undir húð og því vara áhrif þess lengi eftir hvern skammt. Töflurnar eru gefnar við erfiðum sýkingum og við sýkingum undir nöglum. Virka efnið terbínafín virkar sveppadrepandi eða sveppahemjandi á flestar tegundir sveppa sem algengt er að valdi sýkingum í húð. Milliverkanir terbínafíns við önnur lyf eru fátíðari en almennt gildir um sveppalyf til inntöku, og meðferðartími þess er oftast styttri.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn þyngri en 40 kg: 250 mg á dag; börn eldri en 2ja ára, undir 20 kg: 62,5 mg á dag; börn 20-40 kg: 125 mg á dag. Töflurnar takist inn með vatnsglasi.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir staðsetningu sýkingar, lyfjaformi sem er notað og næmi sveppa fyrir lyfinu.
Verkunartími:
Lyfið situr eftir í fitulagi undir húð í 2-3 mánuði eftir að meðferð lýkur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um. Hætti lyfjatöku of snemma aukast líkur á því að sýkingin nái sér aftur á strik.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef barn notar lyfið, notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða.
Aukaverkanir
Um 10% þeirra sem taka lyfið inn finna fyrir einhverjum aukaverkunum, oftast í upphafi meðferðar, en algengt er að einkennin hverfi þegar líður á meðferð.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | ![]() |
![]() |
|||||
Höfuðverkur | ![]() |
![]() |
|||||
Kviðverkir, niðurgangur og meltingartruflanir | ![]() |
![]() |
|||||
Mettunartilfinning, lystarleysi | ![]() |
![]() |
|||||
Ógleði | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot, kláði | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Abilify
- Abilify Maintena
- Abilify Maintena (Lyfjaver)
- Amitriptylin Abcur
- Arcoxia
- Aripiprazol Krka
- Aripiprazol Medical Valley
- Aripiprazol W&H
- Arzotilol
- Azarga
- Azilect
- Bloxazoc
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Cloxabix
- Cosopt sine
- Coxerit
- Coxient
- Dorzolamide/Timolol Alvogen
- Duokopt
- DuoTrav
- Efexor Depot
- Emselex
- Etoricoxib Krka
- Fixopost
- Flúoxetín Actavis
- Fluoxetin Viatris
- Fluoxetin WH
- Fluoxetine Vitabalans
- Fontex
- Fotil forte
- Ganfort
- Haldol
- Haldol Depot
- Ikervis
- Logimax
- Logimax forte
- Metoprolol Alvogen
- Metoprololsuccinat Hexal
- Mianserin Viatris (áður Mianserin Mylan)
- Noritren
- Parkódín
- Parkódín forte
- Paxetin
- Rasagilin Krka
- Rimactan
- Ríson
- Risperdal
- Risperdal Consta
- Risperidon Krka
- Risperidone Teva GmbH
- Sandimmun Neoral
- Seloken
- Seloken ZOC
- SEM mixtúra
- Seroxat
- Tambocor
- Tambocor (Heilsa)
- Taptiqom
- Taptiqom Sine
- Timosan Depot
- Tradolan
- Tramadol Actavis
- Tramadol Krka
- Tramól-L
- Travoprost/Timolol Medical Valley
- Travoprost/Timolol STADA
- Venlafaxin Krka
- Venlafaxin Medical Valley
- Venlafaxin Teva
- Venlafaxine Alvogen
- Venlafaxine Bluefish
- Warfarin Teva
- Xalcom
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.