Oxcarbazepin Jubilant

Flogaveikilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Oxkarbazepín

Markaðsleyfishafi: Jubilant Pharmaceuticals nv | Skráð: 1. nóvember, 2018

Oxcarbazepin Jubilant, sem inniheldur virka efnið oxkarbazepín, er notað við flogaveiki. Flogaveiki getur orsakast af heilaskaða eða gengið í erfðir. Margar undirtegundir flogaveiki hafa verið skilgreindar eftir þeim einkennum sem fylgja flogunum og breytingum sem verða á heilastarfsemi á meðan þau ganga yfir. Einkenni flogaveiki stafa af óeðlilega mikilli virkni taugafrumna í heila og óvenju mikilli tíðni taugaboða. Þessar breytingar geta verið bundnar við lítinn hluta heilans eða náð yfir stóran hluta hans. Í flestum tilfellum ganga flog yfir á 20 sek.-2 mín. Oxkarbazepín er efnafræðilega skylt öðru flogaveikilyfi, karbamazepíni. Verkunarmáti lyfjanna er talinn vera svipaður, þ. e. að minnka hæfileika taugafrumna til þess að senda frá sér boð með mjög stuttu millibili og hindra þannig þær breytingar sem verða á starfsemi heilans í flogaköstum. Oxkarbazepín virðist hafa svipað notagildi og karbamazepín við flogaveiki, sem verkar á staðbundin flog og krampaflog, en hefur ekki áhrif á störuflog. Oxkarbazepín þolist yfirleitt betur og virðist hafa færri milliverkanir við önnur lyf en karbamazepín, og er því oft notað hjá þeim sjúklingum sem ekki þola karbamazepín. Einnig er hugsanlegt að hægt sé að nota oxkarbazepín við langvarandi taugaverkjum eða sem fyrirbyggjandi við oflætisköstum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 600-2400 mg á dag tekið í 2 skömmtum. Börn 6 ára og eldri: 8-46 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag, tekið í 2 skömmtum.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
2-3 daga að ná stöðugri virkni.

Verkunartími:
7-20 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ef fleiri en einn skammtur gleymast í röð skaltu hafa samband við lækni. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Aukin hætta er á að flog komi fram þegar lyfjameðferð lýkur, sérstaklega hafi skammtar ekki verið minnkaðir smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Æskilegt er að fylgjast reglulega með blóðþéttni lyfsins, samsetningu blóðs og lifrarstarfsemi þegar lyfið er tekið lengi í senn.


Aukaverkanir

Flestar aukaverkanir lyfsins eru vægar og koma helst fyrir í upphafi meðferðar. Einkennin mildast oft með tímanum. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru höfuðverkur, þreyta, svimi og ósamhæfðar hreyfingar. Húðútbrot eru algeng og í flestum tilfellum skaðlítil, en geta þó verið merki um alvarlegar aukaverkanir. Þess vegna skal hafa samband við lækni strax ef vart verður við útbrot. Fái sjúklingur flogakast, sem tekur lyfið reglulega við flogaveiki, skal strax hafa samband við lækni.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólur í húð, hárlos          
Erfiðleikar við að samhæfa hreyfingar          
Gula        
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttartruflanir        
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Kviðverkir, hægðatregða          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Ósjálfráðar augnhreyfingar og sjóntruflanir          
Skapgerðarbreytingar          
Skjálfti          
Svefnhöfgi, þróttleysi og sundl          
Útbrot          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Lyfið getur valdið því að hormónagetnaðarvarnarlyf virki ekki og því þarf að nota aðra eða viðbótar getnaðarvörn sem inniheldur ekki hormóna meðan á meðferð á lyfinu stendur.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Á meðgöngu er mikilvægt að hafa stjórn á flogaköstum. Lyfið getur haft skaðleg áhrif á fóstur en læknir mun ræða við þig um ávinning og hugsanlega áhættu með notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki hætta notkun lyfsins á meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Ekki á að nota lyfið meðan á brjóstagjöf stendur. Leitið ráða hjá lækni áður en lyf eru notuð þann tíma sem barn á að vera á brjósti.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum, minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Auk þeirra áhrifa sem flogaveikin hefur sjálf, getur lyfið valdið syfju, sundli og þokusýn. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið nema ráðfæra þig við lækni fyrst og ef lyfið hefur ekki áhrif á hæfni þína til aksturs.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Áfengi eykur sljóvgandi áhrif lyfsins og getur haft áhrif á niðurbrot þess í lifur.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.