Monopril (afskráð jan. 2009)

óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Fosínópríl

Markaðsleyfishafi: óskráð

Monopril, sem inniheldur virka efnið fosínópríl, tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í honum hamla myndun angíótensíns II, en það er eitt öflugasta æðaþrengjandi efni í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II útskilnað vatns í nýrum, við það eykst rúmmál blóðs og stuðlar þannig enn frekar að hækkun blóðþrýstingsins. Lyfin hindra líka niðurbrot á æðavíkkandi efni í líkamanum, bradýkíníns. Monopril er notað við háþrýstingi og til þess að minnka álag á hjartað hjá sjúklingum með hjartabilun. Þvagræsilyf eru oft notuð samtímis fosínópríli, sérstaklega þegar lyfið er gefið við hjartabilun.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
5-40 mg í senn einu sinni á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1 klst. Hámarksáhrif koma fram eftir 2-6 klst.

Verkunartími:
24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ástand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegra er að minnka skammtana smám saman en að hætta skyndilega. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru svimi og hósti.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur          
Gula          
Hjartsláttartruflanir        
Hósti          
Lágur blóðþrýstingur          
Svimi          
Truflun á bragðskyni          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkur fyrir brjósti, mæði        

Milliverkanir

Æskilegt er að láta líða a.m.k. 2 klst. á milli inntöku sýrubindandi lyfja og fosínópríls. Lyfið getur einnig dregið úr kalíumtapi af völdum þvagræsilyfja. Þess vegna á að fylgjast vel með kalíumþéttni í blóði hjá sjúklingum sem fá kalíumsparandi þvagræsilyf eða taka aukalega kalíum inn. Samtímis notkun blóðþrýstingslækkandi lyfja, t.d. beta-blokka, getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif fosínópríls. Fosínópríl getur aukið blóðsykurlækkandi áhrif insúlíns og sykursýkilyfja til inntöku.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.