Methotrexate Orion Pharma

Lyf til ónæmisbælingar | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Metótrexat

Markaðsleyfishafi: Orion Corporation | Skráð: 5. ágúst, 2016

Metótrexat tilheyrir flokki efna sem koma í veg fyrir myndun eða nýtingu ýmissa lífsnauðsynlegra efna í frumum. Metótrexat hindrar myndun fólínsýru í frumum, en fólínsýra er nauðsynleg fyrir nýmyndun erfðaefnis. Áhrif metótrexats eru mest þar sem frumuskipting er hvað örust, eins og í illkynja æxlisfrumum, beinmerg, fósturfrumum, húðfrumum og í slímhúð meltingarfæra. Hjá fullorðnum er Methotrexate Orion Pharma notað við liðagigt, alvarlegum og þrálátum sóra og alvarlega sóraliðagigt. Methotrexate Orion Pharma er einnig notað sem viðhaldsmeðferð við bráðu eitilfrumuhvítblæði hjá fullorðnum, unglingum og börnum 3 ára og eldri. Þegar metótrexat er notað í stórum skömmtum er hægt að gefa afbrigði af fólínsýru með lyfinu til að draga úr eiturverkunum þess. Heilbrigðar frumur nýta fólínsýruna betur en krabbameinsfrumur. Þeir sem þjást af skemmdum í lifur, nýrum eða beinmerg, hafa alvarlegan lungnasjúkdóm eða neyta áfengis í óhófi eiga ekki að nota lyfið.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
7,5-15 mg í senn einu sinni í viku.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
3-6 vikur.

Verkunartími:
Einstaklingsbundið

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Forðast skal áfengi, og einnig mikið magn af kaffi, gosdrykkjum sem innihalda koffín og svörtu tei, meðan á meðferð stendur. Vertu samt sem áður viss um að þú drekkir mikið magn af vökva þar sem vökvaskortur getur aukið aukaverkanirnar af völdum methotrexats.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá, helst í læstum skáp.

Ef skammtur gleymist:
Taktu gleymda skammtinn um leið og þú manst eftir ef það er innan tveggja daga. Ef þú gleymdir skammti lengur en í tvo daga skaltu þó leita ráða hjá lækninum. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa tafarlaust samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Ofskömmtun methotrexats getur leitt til alvarlegra eiturverkana, þ.m.t. andláts.

Langtímanotkun:
Gjöf metótrexats í langan tíma og stórum skömmtum getur leitt til lifrarskemmda. Fylgjast þarf með lifrarstarfsemi. Fylgjast þarf með blóðhag, lifrar- og nýrnastarfsemi á meðan lyfið er notað.


Aukaverkanir

Tíðni aukaverkana er háð skammtastærð. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru óþægindi í meltingarvegi, s.s. ógleði og magaverkir. Það getur valdið bandvefsmyndun í lungum. Ef vart verður við þurran hósta eða önnur slík óþægindi skal hafa samband við lækni strax.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin þvaglát eða þvagtregða          
Gula          
Hárlos          
Höfuðverkur, svimi          
Lystarleysi          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Sár í munni          
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Sýkingar          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti        
Þokusýn          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • hvort þú sért með sykursýki
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með blóðsjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með áfengissýki
  • þú sért með einhverja sýkingu
  • þú sért með bólgu, sár eða sýkingu í munnholi

Meðganga:
Lyfið skal ekki nota á meðgöngu, það eykur líkur á fósturskaða. Þú verður að forðast þungun og nota öruggar getnaðarvarnir á meðan meðferð stendur og í að minnsta kosti 6 mánuði eftir að meðferðinni lýkur.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið og því skal ekki vera með barn á brjósti á meðan meðferð stendur.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum 3 ára og yngri. Börn og unglingar sem fá meðferð með methotrexati skulu vera undir nánu eftirliti læknis.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir. Aldraðir sem fá meðferð með methotrexati skulu vera undir nánu eftirliti læknis.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Eykur líkur á lifrarskaða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.