Theo-Dur (afskráð feb. 2009)

óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Teófýllín

Markaðsleyfishafi: óskráð

Teófýllín, virka efni lyfsins Theo-Dur, hefur slakandi verkun á vöðva í lungnaberkjum og veldur því að berkjurnar víkka. Theo-Dur er notað við astma, langvarandi berkjubólgu og lungnaþembu í tengslum við tímabundinn berkjukrampa. Lyfið eykur einnig hjartsláttartíðni og samdráttarkraft hjartans.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Forðatöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 150-450 mg í senn 2svar á dag. Börn: 100-200 mg í senn 2svar á dag. Töflurnar gleypist heilar eða hálfar. Má hvorki tyggja þær né mylja.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Þéttni lyfsins er í hámarki 3-6 klst. eftir töku skammts.

Verkunartími:
Er einstaklingsbundinn. Margir utanaðkomandi þættir geta haft áhrif á verkun lyfsins, svo sem reykingar og mataræði.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Mataræði hefur áhrif á verkun lyfsins. Fáðu ráðleggingar hjá lækni.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni. Hugsanleg einkenni ofskömmtunar eru svefnleysi, lystarleysi, geðæsing, kvíði, ógleði, uppköst, lágþrýstingur, hjartsláttarónot, hraðsláttur, hjartsláttartruflanir og krampar.

Langtímanotkun:
Læknir þarf að fylgjast vel með að skammtar séu réttir.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hraður hjartsláttur        
Höfuðverkur, skjálfti          
Ógleði, uppköst, lystarleysi          
Taugaveiklun, óróleiki, svefntruflanir          
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Minni skammtar eru notaðir.

Eldra fólk:
Lyfið skilst hægar út úr líkamanum og því eru minni skammtar oft notaðir.

Akstur:
Sumar aukaverkanir lyfsins geta skert aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Sjúklingar sem reykja þurfa stærri skammta af teófýllíni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.