Indocid (afskráð apr. 2006)

óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Indómetacín

Markaðsleyfishafi: óskráð

Indómetacín hefur bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi áhrif. Indómetacín dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda m.a. bólgu. Indómetacín er notað við ýmsum gigtsjúkdómum, þvagsýrugigt, bólgum kringum liði, bakverkjum, bólgum og verkjum eftir aðgerðir.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Hylki til inntöku og endaþarmsstílar.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 50-200 mg á dag. Börn: 2-4 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Hylkin gleypist heil með mat.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Verkjastillandi og hitalækkandi áhrif byrja að koma fram innan 1 klst. Bólgueyðandi áhrif sjást eftir lengri tíma.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að nota lyfið. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Ráðlegt er að fara reglulega í augnskoðun sé lyfið tekið lengi. Við langtímanotkun getur lyfið líka valdið magasári eða magablæðingu. Því er nauðsynlegt að fara reglulega í eftirlit til læknis sé lyfið notað í langan tíma.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er höfuðverkur.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Kviðverkir, hægðatregða          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Suð fyrir eyrum          
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þunglyndi          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með geðrænar truflanir
  • þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
  • þú sért með magabólgur
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með parkinsonsveiki
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir blæðingartilhneigingu
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum nema við alvarlegri liðagigt og er skammtastærð þá háð líkamsþunga.

Eldra fólk:
Meiri hætta er á aukaverkunum.

Akstur:
Lyfið getur dregið úr viðbragðsflýti og þar með skert aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á lyfið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.