Ramazíð (afskráð apr. 2008)

óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Hýdróklórtíazíð Ramipríl

Markaðsleyfishafi: óskráð

Ramazíð inniheldur tvö virk efni, ramipríl og hýdróklórtíazíð. Það er notað við háum blóðþrýstingi þegar nægilegur árangur hefur ekki náðst með einu lyfi og nauðsynlegt er að nota tvö lyf. Ramipril er hjartalyf sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast angíótensín II blokkar. Lyfið hindrar áhrif angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Ramipríl lækkar því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Hýdróklórtíazíð flokkast til þvagræsilyfja. Lyfið lækkar blóðþrýsting, eykur þvagmyndun í nýrum og losar líkamann við vökva. Samfara aukinni vatnslosun veldur hýdróklórtíazíð útskilnaði margra salta, aðallega kalíums. Í lyfinu Ramazíð eru þessi tvö lyf gefin saman til þess að ná fram enn meiri lækkun á blóðþrýstingi en mögulegt væri þegar lyfin eru gefin hvort í sínu lagi.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
1 tafla á dag, að morgni. Hver tafla inniheldur 2,5 mg ramipríl og 12,5 mg hýdróklórtíazíð.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1-2 klst. Hámarksáhrif koma fram eftir 3-6 klst.

Verkunartími:
A.m.k. 24 klst. við venjulega skammta.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ástand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegast er að minnka skammta smám saman en að hætta skyndilega. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Lyfið getur valdið alvarlegu blóðþrýstingsfalli í upphafi meðferðar eða við hækkun skammta, einkum hjá sjúklingum með hjartabilun með eða án nýrnabilunar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Hósti          
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Kviðverkir, niðurgangur, meltingartruflanir, vindgangur          
Lágur blóðþrýstingur          
Mæði        
Ógleði og uppköst          
Útbrot, kláði eða öndunarerfiðleikar      
Þvagtregða          

Milliverkanir

Ramipríl getur dregið úr kalíumtapi af völdum þvagræsilyfja. Fylgjast ætti vel með kalíumþéttni í blóði hjá sjúklingum sem fá kalíumsparandi þvagræsilyf eða láta þá taka kalíum aukalega. Samtímis notkun náttúrulyfsins ginkgo getur valdið hærri blóðþrýstingi.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með lágan blóðþrýsting eða blóðrásartruflanir
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið þvagsýrugigt
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða og má alls ekki taka á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Gæta skal varúðar og mælt er með skammtaaðlögun beggja virku efnanna áður en skipt er yfir í Ramazíð.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.

Annað:
Fylgjast þarf með magni kalíums í blóði hjá sjúklingum sem eiga kalíumhækkun á hættu (t.d. sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi eða sykursýki og þeim sem eru samhliða á meðferð með kalíumsparandi þvagræsilyfjum, kalíumuppbót eða nota saltlíki sem inniheldur kalíum).


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.